26.janúar 2012
Við kynnum með stolti nýtt og glæsilegt merki upplýsingatæknifyrirtækisins Advania, sem var hannað á Hvíta húsinu af Gunnari Þór Arnarsyni, framkvæmdastjóra hönnunarsviðs.
Advania varð til við samruna Skýrr, HugarAx og norrænna dótturfyrirtækja. Það má geta þess að það er eitt af tíu stærstu fyrirtækjunum í upplýsingatækni á Norðurlöndunum með starfsemi á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Lettlandi.
Það er að sjálfsögðu afar mikilvægt að merki fyrirtækis endurspegli starfsemina sem þar fer fram. Okkur þykir Gunna hafa tekist að leysa það verk vel af hendi en við hönnunina sótti hann í smiðju hollenska listamannsins M.C. Escher.
Eins og sjá má er merkið byggt upp á þrístendingum sem mynda ferhyrninga. Kassarnir byggjast upp í form sem táknar vöxt og skipulag. Það sýnir kraft og uppbyggingu Advania auk þess að virkar vel með nafninu og tengja það við framþróun og forystuhlutverk.
Merkið er hugsað út frá „Logo Motion“ hugmyndafræði og tekur á sig ýmsar myndir eftir staðsetningu og miðlum og „flæðir“ inn í alla hönnun og markaðsefni Advania. Sjónrænt virka form kassanna eins og þeir séu í þrívídd, bæði holir og kúptir um leið. Þessi dýnamík sameinar hið tæknilega og hið lífræna í fyrirtækinu.
Nafnið varð til hjá Scriptor, sem er sænskt sérfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig alþjóðlegum nöfnum á fyrirtækjamarkaði. Nýja nafnið er dregið af enska orðinu „Advantage“ (forskot) og vísar í það forskot sem þjónusta fyrirtækisins veitir viðskiptavinum.
Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ samkvæmt Google Translate. Það er vissulega mjög spaugilegt, en rétt er þó að benda á að þarna skjátlast hinum mikilvirka en mistæka þýðanda. „Vania“ er ekki latína og þar með fellur brandarinn um sjálfan sig. Advania er hreinræktað nýyrði og sækir merkingu sína í orðið sem það er dregið af.
Við óskum Gunnari til hamingju með merkið og Advania farsældar á þessum nýju og spennandi tímum.
Senda á Facebook