Angels - ný auglýsing frá Umferðarstofu

09.júní 2011

Í kvöld var frumsýnd ný auglýsing sem við á Hvíta húsinu unnum fyrir Umferðarstofu í samstarfi við framleiðslufyrirtækið True North. Auglýsingin fjallar um það að árlega deyji allt of margir í slysum sem verða vegna hraðaksturs.

Hugmyndasmiður auglýsingarinnar er Bjarney Hinriksdóttir, grafískur hönnuður, leikstjórar voru Sammi og Gunni, og tökumaður Óttar. Hið hjartnæma lag „I Think of Angels“ eiga þau KK og Ellen Kristjánsdóttir en lagið sömdu þau um systur sína sem lést í bílslysi í Bandaríkjunum. Við þökkum þeim kærlega fyrir að leyfa okkur að nota það.
Við viljum jafnframt þakka Umferðarstofu og True North fyrir frábært samstarf.

Nánari upplýsingar gefa Gunnar Þór Arnarson gunnar@hvitahusid.is eða Gísli S. Brynjólfsson gisli@hvitahusid.is

This text will be replaced


Senda á Facebook

Til baka í fréttayfirlit

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús

Wp Plugin by capn3m0