30.desember 2011
Rannsóknir sýna að samvera fjölskyldunnar er ein besta forvörnin gegn vímuefnum. Actavis vildi minna á þessa frábæru forvörn nú rétt fyrir áramót.
Góð skilaboð eru aldrei of oft sögð því öll gleymum við öðru hvoru því sem skiptir máli. Við gerðum því heilsíðuauglýsingu, vefborða og lendingarsíðu fyrir Actavis þar sem skilaboðunum er komið á framfæri.
Það er vert að geta þess að vefborðinn sem er í formi frétta er einn áhrifaríkasti vefborði sem gerður hefur verið á Hvíta húsinu, eins konar smella-hástökkvari. Meðalárangur sambærilegra vefborða er sá að um 0.02%-0.1% þeirra sem sjá hann smella á hann en þessi vefborði hefur fengið um 1% smelli, sem er framúrskarandi árangur.
Kynnið ykkur endilega mikilvægustu ráðin í forvörnum á www.actavis.is/forvarnir, www.forvarnardagur.is og facebook.com/forvarnardagur.
Gleðilegt nýtt ár.
Senda á Facebook