27.júlí 2010

Ostar
„Hey, ostur!“ Þetta gætu einhverjir sagt sem eiga leið framhjá bænum Reykjum á Skeiðum. Þar hefur Mjólkursamsalan komið upp nokkrum af sínum vinsælustu ostum í risastærð. Ekki er þó um eiginlega osta að ræða heldur svona fallega skreyttar heyrúllur.
Hvíta húsið hafði veg og vanda að þessari skemmtilegu framkvæmd og mælum við með að fólk bregði sér í bíltúr austur fyrir fjall til að bera ostana augum.
Senda á Facebook