„Allir vinna“ hvatningarátak

22.júlí 2010

Hvíta húsið vinnur að hvatningarátaki ríkis og aðila vinnumarkaðarins um atvinnuskapandi framkvæmdir

Í dag, 7. júlí, verður ýtt úr vör hvatningarátaki sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins efna til í sumar um atvinnuskapandi framkvæmdir. Átakið snýst um að koma hjólum atvinnulífsins af stað og felur í sér 100% endurgreiðslu á keyptri vinnu við framkvæmdir auk skattafrádrátts sem getur numið allt að 300 þúsund krónum.
Landsmenn eru hvattir til að taka þátt í átakinu með viðhaldi íbúðarhúsnæðis/sumarhúsa og til að beina viðskiptum sínu að innlendri vöru og þjónustu. 100% endurgreiðsla á virðisaukaskatti og skattafrádráttur vegna vinnu við eigið húsnæði ýta undir að viðhaldsverkefni af þessu tagi séu uppi á borðum en átak til að stemma stigu við svartri vinnu er eitt af sameiginlegum hagsmunamálum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
Hvíta húsið vinnur allt auglýsingaefni átaksins og fékk hinn landsþekkta teiknara Halldór Baldursson til þess að túlka skilaboðin á jákvæðan, skemmtilegan og uppbyggilegan hátt með teikningum sínum.
Þeir sem standa að átakinu auk ríkisins eru Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.


Senda á Facebook

Til baka í fréttayfirlit

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús