08.mars 2010
Hvíta húsið hlaut tvenn verðlaun á Íslensku auglýsingaverðlaununum 2009. Annars vegar var um að ræða verðlaun í flokknum Almannaheill - Ljósvaki. Þar var það auglýsing sem Hvíta húsið gerði fyrir Samtök iðnaðarins og var hugsuð til að sporna við svartri atvinnustarfsemi.
Hinsvegar var um að ræða verðlaun í flokknum Almannaheill-aðrir miðlar. Þar sigraði vefborði frá Umferðarstofu og Vís úr herferð sem ætlað var að stuðla að notkun bílbelta.
Hvíta húsið óskar starfsmönnum og viðskiptavinum til hamingju með verðlaunin.
Senda á Facebook