Hvíta Húsið óskar eftir hönnuðum

05.mars 2010

Teiknistofa Hvíta hússins óskar eftir að ráða grafískan hönnuð og vefhönnuð.

Grafískur hönnuður þarf að vera með próf úr Listaháskólanum eða sambærilega menntun. Viðkomandi þarf að kunna á öll helstu forrit sem tengjast starfinu, geta unnið sjálfstætt og skapandi. Við leitum af einstaklingi með hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði. Reynsla af störfum í auglýsingageiranum er kostur en ekki skilyrði.

Vefhönnuður þarf að hafa næmt auga fyrir smáatriðum, fylgjast vel með helstu straumum og stefnum í vefhönnun og vera fljótur að tileinka sér nýjungar. Innan Hvíta hússins er starfandi ört vaxandi nýmiðlunar- og vefhönnunardeild sem spilar Call of Duty í hádeginu.

Sendið umsóknir á starf@hvitahusid.is fyrir 15. mars 2010.

Hvíta húsið hefur starfað lengst allra auglýsingastofa hérlendis, allt frá árinu 1967 og hefur áratuga reynslu af markaðsstörfum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Nafn stofunnar er dregið af eggi, tákni frjósemi og sköpunar, sem jafnframt er grunnurinn að merki fyrirtækisins. Hvíta húsið er fullt hús hugmynda.


Senda á Facebook

Til baka í fréttayfirlit

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús