KEF ráðfærir sig við fjöldann

16.desember 2011

picture-2Hlutverk Keflavíkurflugvallar er að veita farþegum sem um völlinn fara sem allra bestu þjónustu. Hluti af því er að reyna að laða til sín flugfélög frá sem flestum áfangastöðum og fá þau til þess að fljúga til og frá Íslandi. Þá er auðvitað nauðsynlegt að vita hvert Íslendingar vilja helst fljúga beint.

Það var því ráðist í að biðja landsmenn um álit sitt á nýjum áfangastöðum. Til þess að fá sem flesta til að segja sína skoðun var gerður skemmtilegur leikur á Facebook. Íslenskir Facebook notendur voru þar beðnir um að velja drauma-áfangastaðinn sem þá langaði að ferðast til ásamt einhverjum vini sínum á Facebook. Þann 23. desember verður svo dregið úr innsendum álitum og heppinn vinningshafi fær helgarferð á sinn drauma-áfangastað ásamt Facebook vininum.

Að sjálfsögðu var herferðin gerð í samræmi við reglur um Facebook-leiki og fékk vottun upp á það. Til að styðja við hana vorum við einnig með auglýsingar á Facebook og á vinsælum íslenskum vefmiðlum sem hefur borið góðan árangur. Að auki var herferðin keyrð á Google Display Network og birtist auglýsingaefni um leikinn á fjölmörgum erlendum vefsvæðum m.a. YouTube.

picture-3screen-shot-2011-12-16-at-111205-am


Senda á Facebook

Til baka í fréttayfirlit

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús

Wp Plugin by capn3m0