19.nòvember 2009
Kreditkort hf. fékk á dögunum viðurkenningu frá American Express International fyrir sérstaklega góðan árangur í markaðssetningu á American Express kortunum á Íslandi. Það er aðeins rúmt ár síðan American Express kortin komu á markað á Íslandi en það hefur vakið athygli hversu vel hefur gengið að markaðssetja kortin. Viktor Ólason, framkvæmdastjóri Kreditkorts og Sigfríð Eik Arnardóttir, markaðsstjóri Kreditkorts, veittu viðurkenningunni viðtöku í höfuðstöðvum American Express International í New York.
Hér er hægt að sjá herferðirnar sem Hvíta húsið hefur unnið:
Senda á Facebook