14.júní 2010
Jonathan Taplin, prófessor, hélt fyrirlestur á morgunverðarfundi á Nauth
ól bistro föstudaginn 4. júní. Taplin var hér á vegum Hvíta hússins og fjallaði um stafrænu byltinguna svokölluðu sem er að eiga sér stað í fjölmiðlun um þessar mundir.
Jonathan Taplin er einn helsti sérfræðingur Kaliforníu á sínu sviði og situr meðal annars í nefnd sem Arnold Schwarzenegger, ríkistjóri Kaliforníu, skipaði um breiðbandsmá (California Broadband Task Force) og hefur einnig veitt ýmsum erlendum aðilum ráðgjöf, svo sem Katalónska þinginu á Spáni og ríkisstjórn Singapúr.
Jonathan Taplin hefur mikla reynslu á sviði afþreyingar og fjölmiðlunar hvers konar. Hann var framleiðandi fyrstu kvikmyndar Martin Scorsese og vann meðal annars með Janis Joplin og Bob Dylan. Hann starfar nú sem prófessor við Annenberg School for Communication við University of Southern California.
Á morgunverðarfundinum líkti Taplin stafrænu byltingunni við þá er átti sér stað á tuttugustu öldinni þegar bílar, flugvélar og fjarskiptatækni gjörbreyttu heiminum. Hann segir að stafræn miðlun á upplýsingum muni gjörbreyta rekstri sjónvarpsstöðva, auglýsingum og fjölmiðlun almennt. Raunar sé sú bylting nú þegar hafin og fái byr í seglin með tilkomu tækja á borð við iPad.
Því hefur verið spáð að hlutfall sjónvarpsefnis og myndbanda á Netinu muni stóraukast á komandi árum og bendir Taplin á að þar af leiðandi muni gagnamagn á Netinu margfaldast. Hann segir netfyrirtækin því undir ákveðinni pressu því á sama tíma er vaxandi krafa um að starfsemi gagnavera sé umhverfisvæn. Taplin telur að hér séu sóknarfæri fyrir íslenskan orkugeira.
Ein stærsta breytingin sem stafræna byltingin hefur í för með sér er að sögn Taplin sú að afþreying og annað efni verður í enn meira mæli á þann hátt að notandinn sækir sér það efni sem hann vill sjá.
Taplin segir að verðlagning á efni Netsins þurfi að breytast mikið til að laga sig að breytingum á miðlun efnis. Hann dregur í efa að það gangi upp að allt efni verði meira og minna ókeypis og fjármagnað með auglýsingatekjum. Hann telur að það muni leiða til minni gæða og leggur í staðinn til að tekin verði upp nokkurs konar stefgjöld fyrir notkun á efni á Netinu. Þannig segir hann að greiðslur muni rata rétta leið til þeirra sem skapa efni.
Taplin snerti á ýmsum málefnum sem tengjast stafrænni fjölmiðlun á morgunfundinum, en húsfyllir var í Nauthól.
Að kvöldi 4. júní fór síðan fram Innilega 2010 í húsakynnum Hugmyndahúss háskólanna (áður Saltfélaginu). Þangað mættu starfsmenn Hvíta hússins og velunnarar.
Senda á Facebook