18.ágúst 2010
Stefán „okkar“ Einarsson, grafískur hönnuður á Hvíta húsinu, bar sigur úr býtum í auglýsingasamkeppni Sameinuðu þjóðanna. Keppnin er liður í átaki Sameinuðu þjóðanna sem miðar að því að binda enda á fátækt fyrir 2015. Stefán hlaut einnig 3. og 5. verðlaun í keppninni en alls bárust 2034 tillögur í keppnina frá 30 löndum.
Við óskum Stefáni innilega til hamingju. Hann mun halda út til Madridar þann 10. september – daginn eftir afmælið sitt – og veita verðlaunum viðtöku úr höndum sjálfrar Soffíu Spánardrottningar.
Senda á Facebook