Sýnum kærleik í verki

19.oktòber 2011

kaerleikskulanStyrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar því orðnar níu talsins. Úr er orðið safn fallegra listaverka eftir marga af okkar þekktustu listamönnum en í ár er það enginn önnur en Yoko Ono sem hannar Kærleikskúluna.

Nafn kúlunnar er táknrænt en markmiðið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Allur ágóðinn rennur til starfsemi Reykjadals, sumar- og helgardvalar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Mosfellsdal.

Listamenn Kærleikskúlunnar hafa allir gefið vinnu sína og þannig stutt dyggilega við starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Við hvetjum alla til að sýna kærleik í verki með kaupum á kærleikskúlunni.


Senda á Facebook

Til baka í fréttayfirlit

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús

Wp Plugin by capn3m0