03.maí 2012
Fyrsta stóra herferðin sem við gerum fyrir Vodafone gengur út á að hvetja snjallsímaeigendur til að nota snjallsímana. Þess vegna fengum við Retro Stefson til að spila nýjasta lag sveitarinnar, Kensho, með öppum og sýna þannig hvað það er hægt að ná langt. Við vitum ekki til þess að heilt lag hafi verið spilað á þennan hátt hér á landi.
Eins og svo oft áður var það tvístirnið frá Truenorth, Sammi og Gunni, sem stóð á bak við myndavélarnar og leysti verkefnið af stakri prýði. Á mjög löngum tökudegi héldu Retro Stefsons fjóra óvænta tónleika á fjórum stöðum í miðbæ Reykjavíkur. Við erum hæstánægð með afraksturinn og flest öll búin fá þennan grípandi sumarsmell á heilann fyrir löngu.
Hér má horfa á myndbandið.
Senda á Facebook