Við kynnum með stolti nýtt og glæsilegt merki upplýsingatæknifyrirtækisins Advania, sem var hannað á Hvíta húsinu af Gunnari Þór Arnarsyni, framkvæmdastjóra hönnunarsviðs.
Advania varð til við samruna Skýrr, HugarAx og norrænna dótturfyrirtækja. Það má geta þess að það er eitt af tíu stærstu fyrirtækjunum í upplýsingatækni á Norðurlöndunum með starfsemi á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Lettlandi.
Það er að sjálfsögðu afar mikilvægt að merki fyrirtækis endurspegli starfsemina sem þar fer fram. Okkur þykir Gunna hafa tekist að leysa það verk vel af hendi en við hönnunina sótti hann í smiðju hollenska listamannsins M.C. Escher.
Eins og sjá má er merkið byggt upp á þrístendingum sem mynda ferhyrninga. Kassarnir byggjast upp í form sem táknar vöxt og skipulag. Það sýnir kraft og uppbyggingu Advania auk þess að virkar vel með nafninu og tengja það við framþróun og forystuhlutverk.
Merkið er hugsað út frá „Logo Motion“ hugmyndafræði og tekur á sig ýmsar myndir eftir staðsetningu og miðlum og „flæðir“ inn í alla hönnun og markaðsefni Advania. Sjónrænt virka form kassanna eins og þeir séu í þrívídd, bæði holir og kúptir um leið. Þessi dýnamík sameinar hið tæknilega og hið lífræna í fyrirtækinu.
Nafnið varð til hjá Scriptor, sem er sænskt sérfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig alþjóðlegum nöfnum á fyrirtækjamarkaði. Nýja nafnið er dregið af enska orðinu „Advantage“ (forskot) og vísar í það forskot sem þjónusta fyrirtækisins veitir viðskiptavinum.
Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ samkvæmt Google Translate. Það er vissulega mjög spaugilegt, en rétt er þó að benda á að þarna skjátlast hinum mikilvirka en mistæka þýðanda. „Vania“ er ekki latína og þar með fellur brandarinn um sjálfan sig. Advania er hreinræktað nýyrði og sækir merkingu sína í orðið sem það er dregið af.
Við óskum Gunnari til hamingju með merkið og Advania farsældar á þessum nýju og spennandi tímum.
Senda á Facebook
Rannsóknir sýna að samvera fjölskyldunnar er ein besta forvörnin gegn vímuefnum. Actavis vildi minna á þessa frábæru forvörn nú rétt fyrir áramót.
Góð skilaboð eru aldrei of oft sögð því öll gleymum við öðru hvoru því sem skiptir máli. Við gerðum því heilsíðuauglýsingu, vefborða og lendingarsíðu fyrir Actavis þar sem skilaboðunum er komið á framfæri.
Það er vert að geta þess að vefborðinn sem er í formi frétta er einn áhrifaríkasti vefborði sem gerður hefur verið á Hvíta húsinu, eins konar smella-hástökkvari. Meðalárangur sambærilegra vefborða er sá að um 0.02%-0.1% þeirra sem sjá hann smella á hann en þessi vefborði hefur fengið um 1% smelli, sem er framúrskarandi árangur.
Kynnið ykkur endilega mikilvægustu ráðin í forvörnum á www.actavis.is/forvarnir, www.forvarnardagur.is og facebook.com/forvarnardagur.
Gleðilegt nýtt ár.
Senda á Facebook
Hlutverk Keflavíkurflugvallar er að veita farþegum sem um völlinn fara sem allra bestu þjónustu. Hluti af því er að reyna að laða til sín flugfélög frá sem flestum áfangastöðum og fá þau til þess að fljúga til og frá Íslandi. Þá er auðvitað nauðsynlegt að vita hvert Íslendingar vilja helst fljúga beint.
Það var því ráðist í að biðja landsmenn um álit sitt á nýjum áfangastöðum. Til þess að fá sem flesta til að segja sína skoðun var gerður skemmtilegur leikur á Facebook. Íslenskir Facebook notendur voru þar beðnir um að velja drauma-áfangastaðinn sem þá langaði að ferðast til ásamt einhverjum vini sínum á Facebook. Þann 23. desember verður svo dregið úr innsendum álitum og heppinn vinningshafi fær helgarferð á sinn drauma-áfangastað ásamt Facebook vininum.
Að sjálfsögðu var herferðin gerð í samræmi við reglur um Facebook-leiki og fékk vottun upp á það. Til að styðja við hana vorum við einnig með auglýsingar á Facebook og á vinsælum íslenskum vefmiðlum sem hefur borið góðan árangur. Að auki var herferðin keyrð á Google Display Network og birtist auglýsingaefni um leikinn á fjölmörgum erlendum vefsvæðum m.a. YouTube.

Senda á FacebookOstakökurnar frá MS hafa alltaf verið vinsælar en sitt sýnist hverjum um hver þeirra er best. Sumir vilja meina að fleiri en ein sé best og aðrir segja allar bestar.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar því orðnar níu talsins. Úr er orðið safn fallegra listaverka eftir marga af okkar þekktustu listamönnum en í ár er það enginn önnur en Yoko Ono sem hannar Kærleikskúluna.
Því ekki að virkja unga fólkið sjálft til þess að gera forvarnarmyndbönd, út frá sínum forsendum? Rannsóknir sýna að ölvunardrykkja ungmenna eykst hratt eftir að grunnskóla lýkur og mest fyrsta árið eftir að þau hefja nám við framhaldsskóla.
Á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2011 sem haldin var í Smáranum 22. - 24. september sáum við um hönnun á básum fyrir nokkur fyrirtæki. Eitt þeirra var Sjóvá og vann básinn til verðlauna fyrir að vera sá besti í flokki minni sýningarbása.
Hvernig væri lífið í götu þar sem allir eru tryggðir hjá Sjóvá? Við könnuðum málið og komumst að því að stemmingin væri ansi heimilisleg.
Við fengum leikhópinn Ég og vinir mínir til að gera með okkur auglýsingar fyrir Fyrirtækjalausnir Póstsins. Í auglýsingunum langaði okkur til að leika okkur með vinnustaðamenningu og ...
Við sögðum nýlega frá því að Fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka hefði kynnt nýtt nafn og útlit til sögunnar, Ergo. Með nýju nafni og ásýnd var skærgræn kanína að nafni Berti kynnt til sögunnar.
Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka en í ár þegar 12.481 hlupu. Það er gaman að segja frá því að það hafa heldur aldrei safnast jafn miklir peningar til góðgerðamála á hlaupastyrk.is og í ár.
Fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka hefur kynnt nýtt nafn og kallast nú Ergo. Nýtt nafn og ásýnd hefur verið kynnt með auglýsingaherferð þar sem mest hefur borið á grænu kanínunni Berta.
Skýrr er ekkert venjulegt nördafyrirtæki, það þarf alltaf að taka nördið aðeins lengra en það líkar okkur á Hvíta húsinu sérlega vel.
Ísland í dag fjallaði í gær (miðvikudag) um gerð auglýsingarinnar sem við unnum fyrir Umferðarstofu í samstarfi við framleiðslufyrirtækið True North.
Í kvöld var frumsýnd ný auglýsing sem við á Hvíta húsinu unnum fyrir Umferðarstofu í samstarfi við framleiðslufyrirtækið True North.
Hver vill ekki eiga heillavin? Það er óhætt að fullyrða að börn heimsins þurfa nauðsynlega á heillavinum að halda.
Það er gaman að segja frá því að nú hafa verk okkar hér á Hvíta húsinu fyrir Íslandspóst verið tilnefnd til World Mail Awards.
Það er ekki slæmt þegar ritstjóri hins virta Advertising Age séri ástæðu til þess að fjalla um og hrósa verkum okkar á Hvíta húsinu.
Við getum öll verið sammála um að börn eigi ekki að alast upp við ofbeldi á heimilinu, en það er staðreynd að mörg börn gera það.
Ímark hátíðin fór fram með pompi og pragt á Hilton Reykjavík Nordica hóteli á föstudaginn. Það komu þrír lúðrar í hús til okkar og erum við afar stolt af því.
Okkur á Hvíta húsinu þykir alltaf gaman að vinna fyrir góð málefni enda hlýjar það svo að innan að láta gott af sér leiða.
Spennan fyrir íslensku auglýsingaverðlaununum Lúðrinum magnaðist heldur betur á Hvíta húsinu þegar tilnefningarnar birtust í blaðinu á fimmtudaginn.
Við getum öll verið sammála um að börn eigi ekki að alast upp við ofbeldi á heimilinu, en það er staðreynd að mörg börn gera það.
Þegar sniðugar hugmyndir stinga upp kollinum með engum fyrirvara þarf að hafa hraðar hendur.
Það voru fáir sem ekki gengu hressilega innblásnir út af morgunverðarfundi Hvíta hússins í byrjun febrúar.
Fjármálin vefjast fyrir mörgum, ekki síst fyrir þeim sem eru að verða fjárráða í fyrsta skipti á ævinni enda eru fjármál ekki einföld.
Hið sístækkandi upplýsingatæknifyrirtæki Skýrr þurfti að koma öllu vöru- og þjónustuúrvali sínu fyrir í einni auglýsingu.
Hvíta húsið hélt vel heppnaðan morgunverðarfund um samfélagsmiðla á Nauthóli í nóvember.
Forvarnardagurinn er haldinn í fimmta sinn þetta árið. Hvíta húsið hefur undanfarin ár séð um hönnun og framleiðslu á öllu efni sem tengist Forvarnardeginum.
Hvíta húsið hannaði nýstárlegt skilti sem umhverfissvið Reykjavíkur setti upp við Miklubraut til að minna ökumenn á að nagladekk valda fremur svifryksmengun en önnur dekk.
Vala Þóra Sigurðardóttir, hönnuður hjá Hvíta húsinu, hannaði merki og útlit styrktarsjóðs Kate Winslet, Golden hat foundation.
Þann 10. september voru Stefáni Einarssyni afhent fyrstu verðlaun í samkeppni Sameinuðu þjóðanna um bestu auglýsinguna í baráttunni gegn fátækt í heiminum.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram 21. ágúst síðastliðinn. Líkt og fyrri ár gafst hlaupurum færi á að hlaupa til styrktar góðu málefni.
Stefán „okkar“ Einarsson, grafískur hönnuður á Hvíta húsinu, bar sigur úr býtum í auglýsingasamkeppni Sameinuðu þjóðanna. Keppnin er liður í átaki Sameinuðu þjóðanna sem miðar að því að binda enda á fátækt fyrir 2015.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 21. ágúst. Líkt og undanfarin ár geta hlauparar látið gott af sér leiða og hlaupið til styrktar góðu málefni.
„Hey, ostur!“ Þetta gætu einhverjir sagt sem eiga leið framhjá bænum Reykjum á Skeiðum.
Í dag, 7. júlí, verður ýtt úr vör hvatningarátaki sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins efna til í sumar um atvinnuskapandi framkvæmdir.
Jonathan Taplin, prófessor, hélt fyrirlestur á morgunverðarfundi á Nauthól bistro föstudaginn 4. júní á vegum Hvíta hússins. Um kvöldið var Innilega 2010 þar sem slett var ærlega úr klaufunum.
Jonathan Taplin, prófessor, er nú staddur hérlendis á vegum Hvíta hússins og heldur fyrirlestur á Nauthól bistro, Nauthólsvegi 6, föstudaginn 4.júní n.k. kl 8.30.
Ahhhhtjú! Sumarið hefur haldið hrollkalda innreið sína á Íslandi þar sem fraus á milli sumars og veturs.
Hvíta húsið vann á dögunum herferð til að kynna Barnatryggingu Sjóvá. Efni hennar hefur birst í öllum helstu miðlum og hlotið góðar viðtökur.
Hvíta húsið hlaut þrenn verðlaun og fjórar viðurkenningar á FÍT 2010. Herferðin Gott í matinn sem Hvíta húsið vann fyrir MS hlaut verðlaun í flokknum Auglýsingar og kynningarefni og Auglýsingaherferðum. Þá hlaut vefborði úr herferð VÍS og Umferðarstofu, Notaðu bílbeltin- alltaf, verðlaun í flokki vefauglýsinga.
Hvíta húsið hlaut tvenn verðlaun á Íslensku auglýsingaverðlaununum 2009. Annars vegar var um að ræða verðlaun í flokknum Almannaheill - Ljósvaki. Þar var það auglýsing sem Hvíta húsið gerði fyrir Samtök iðnaðarins og var hugsuð til að sporna við svartri atvinnustarfsemi.
Teiknistofa Hvíta hússins óskar eftir að ráða grafískan hönnuð og vefhönnuð.
Hvíta húsið hefur hlotið fimmtán tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna. Hvíta húsið er tilnefnt í alls tíu flokkum og erum við stolt af þeim árangri.
Starfsmenn Hvíta hússins létu ekki sitt eftir liggja og fögnuðu Öskudeginum á metnaðarfullan hátt. Mátti sjá allt frá olíufurstum til býflugna meðal starfsmanna sem útdeildu sælgæti til barna sem komu og sungu.
Sjóvá endurgreiðir nú tjónlausum og skilvísum viðskiptavinum í Stofni hluta iðgjalda síðasta árs. Auglýsingin spilar inn á þá staðreynd að margir af yngstu kynslóðinni vita ekki hvað ávísun er og það gæti skapað misskilning.
Nýlega hannaði Bjarki Lúðvíksson, sem er margverðlaunaður bæði hér heima og erlendis fyrir vörumerkjahönnun, vörumerki fyrir fyrirtækið Grýtu sem er með starfsemi sína á Blöndósi.
Í janúar fór af stað herferð á vegum Íslandsbanka til að kynna nýtt og byltingarkennt heimilisbókhald, Meniga. Meniga var auglýst í öllum helstu miðlum.