Já.is er þekkt fyrir að vera hentug uppflettisíða fyrir símanúmer og heimilisföng — en Já getur svarað mun fleiri spurningum. Við gerðum herferð fyrir vöruleit fyrirtækisins, leitarþjónustu sem sameinar niðurstöður úr fleiri hundruðum íslenskra vefverslana á einum stað, og sköpuðum heila veröld þrívíðra og örvandi hughrifa til þess að vekja athygli á helstu kostum þjónustunnar.
Hugmyndin dregur innblástur sinn af vinsælli tegund myndefnis sem kalla mætti „undarlega notalegt,“ — og hrífur áhorfandann með inn í þrívíðan abstraktheim þar sem allt gengur smurt og þægilega fyrir sig.
Hugmyndin sem við vildum miðla var sú að það væri alveg jafn þægilegt að versla með hjálp vöruleitarinnar, þar sem hún einfaldar manni talsvert umstang með því að sameina allt á einum stað.
Við fengum svo Þormóð Eiríksson í lið með okkur til þess að semja grípandi lag fyrir þennan nýja heim Já.is — og úr varð þessi fullkomni heimur mjúkra og notalegra forma sem maður getur týnt sér í.