Úthugsuð smáatriði skapa einstaka heild
Úthugsuð smáatriði skapa einstaka heild
Lexus hefur um árabil verið einn af stærstu lúxusbílaframleiðendum heims. Verkefni okkar var að gera Lexus sýnilegri á Íslandi, sýna fram á sérstöðu þeirra í samanburði við samkeppnisaðilana og sanna gildi þeirra fyrir fólk sem leitar að fágun og fullkomnu handverki í bílunum sínum.
Lexus er japanskt fyrirtæki og stolt af því að tengja sig þeirri menningu og menningarsögu. Hugmyndafræði fyrirtækisins snýst öll í kringum nákvæmni, fagmennsku og handverk og var markmiðið að öll skilboð og myndheimur endurspeglaði þeim gildum. Við vildum því fjarlægjast hefðbundnar bílaljósmyndir og sýna þess í stað smáatriðin í bílnum; alla litlu hlutina sem búa til þessa fullkomni heild. Við sóttum líka í tungumálið sjálft og notum handmálað Kanji letur til að skapa enn sterkari tengingu.
Til hliðar við myndheiminn vildum við segja sögur af Lexus og hugmyndafræði þeirra, og hvernig hún tengist við þessa stóru og merkilegu menningarsögu. Myndbönd fyrir samfélagsmiðla segja sögur af því hvernig hugmyndin um Takumi, handverksmeistarann, er partur af allri vinnu fyrirtækisins. Við segjum sögur af því hversu ótrúlegar gæðaprófanir hver og einn bíll gengur í gegnum, hvernig lakkið er prófað og rannsakað, hvernig lýsingin er hönnuð í takt við japanskar hefðir.