Aðalsmerki Hvíta hússins hefur frá upphafi verið skapandi í allri auglýsingagerð og hönnun. Í harðri samkeppni um tíma, athygli og traust neytenda skiptir sköpum að auglýsinga- og kynningarefni fyrirtækja sé eftirtektarvert. Auglýsingar sem fanga athygli fólks og hrífa það með þarf ekki að birta jafnoft og aðrar. Í því felst verulegur sparnaður fyrir þann sem auglýsir.
Starfsfólk Hvíta hússins hefur í áraraðir verið þekkt fyrir að hanna vandað og athyglisvert kynningarefni sem hefur skilað góðum árangri fyrir viðskiptavini stofunnar. Hvíta húsið hefur einnig hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir framúrskarandi hönnun og hugmyndaauðgi bæði hér heima og erlendis.