Til að ná sem bestum árangri þarf að vera náin samvinna milli þeirra aðila sem gera birtingaáætlunina og þeirra sem hanna auglýsinguna. Hvíta húsið hefur kappkostað að bjóða bestu birtingaþjónustu sem völ er á í samvinnu við ABS birtingahús.
ABS birtingahús er stærsta birtingahús landsins og sér um öll birtingamál viðskiptavina Hvíta hússins, s.s. markhópagreiningu, birtingaáætlanir, umsjón og pantanir á birtingum, eftirlit með reikningum frá miðlum sem og almenna ráðgjöf hvað varðar birtingar. ABS sinnir jafnframt rannsóknum á ýmsum sviðum t.d. greiningum á auglýsingamarkaðinum og framkvæmd rýnihópa. Vefur ABS birtingahúss er www.absmedia.is.