Markaðsráðgjafar Hvíta hússins búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu af markaðssetningu á vörum, þjónustu og fyrirtækjum. Þjónusta stofunnar felur m.a. í sér greiningu markaða og markhópa, gerð markaðsrannsókna, markaðslega markmiðasetningu, mótun markaðsstefnu, gerð markaðsáætlana og eftirfylgni þeirra.
Hvíta húsið hefur sérhæft sig í stærri mörkunarverkefnum (e. branding) með góðum árangri. Viðamestu verkefni stofunnar af því tagi hingað til voru unnin fyrir Actavis, Íslandsbanka og MS. Náið samstarf Hvíta hússins og Loewy Group hefur styrkt enn frekar þessa stoð í starfseminni.