Hvíta húsið hefur starfað lengst allra auglýsingastofa hérlendis, allt frá árinu 1961 og hefur áratuga reynslu af markaðsstörfum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Nafn stofunnar er dregið af eggi, tákni frjósemi og sköpunar, sem jafnframt er grunnurinn að merki fyrirtækisins. Hvíta húsið er fullt hús hugmynda.
Með fæturna á jörðinni og höfuðið í skýjunum
Grunnurinn í markaðsstarfi þarf að vera traustur áður en lagt er upp í auglýsingagerðina sjálfa. Með traustan grunn, sem byggist á skýrri stefnumótun, faglegum vinnubrögðum og rannsóknum, er hægt að hefja sig til flugs í hugmyndavinnu og finna snjallar lausnir sem skila árangri. Þessi vinnuaðferð hefur skilað Hvíta húsinu fleiri verðlaunum en nokkurri annarri íslenskri auglýsingastofu, bæði hérlendis og erlendis.
Stjórnendur Hvíta hússins
Framkvæmdastjóri er Magnús Loftsson
Framkvæmdastjóri hönnunarsviðs er Gunnar Þór Arnarson
Stjórnarformaður er Halldór Guðmundsson
Aðrir í stjórn eru: