Barnaheill - Heyrumst

Í tilefni af tuttugu ára starfsafmæli á Íslandi hafa Barnaheill, Save the Children, opnað barna- og unglingavefinn heyrumst.is. Vefurinn er liður í því starfi Barnaheilla að hvetja börn og unglinga til að nýta sér þann rétt til tjáningar sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tryggir þeim.
Heyrumst.is er opinn vettvangur þar sem allir undir 18 ára aldri geta látið í ljós skoðanir á málefnum sem snerta þau. Á vefnum, sem er á íslensku, ensku og pólsku, geta börn og unglingar einnig leitað stuðnings og ráðgjafar á sínum forsendum og notið nafnleyndar.

Í kynningarmyndbandi sem Hvíta húsið vann fyrir barna- og unglingavefinn heyrumst.is er notað lag hljómsveitarinnar Pascal Pinion. Hljómsveitin sem vakti mikla athygli á Airwaves í ár gaf leyfi sitt til að nota lagið sem er það fyrsta sem þær tóku upp á ferlinum. Myndbandið sjálft er innblásið af tónlistarmyndbandi Japönsku hljómsveitarinnar Sour. Masashi Kawamura einn af leikstjórum myndbandsins gaf góðfúslega leyfi til að nota aðferðina sem notuð er i tónlistarmyndbandinu þegar haft var samband við hann.


Til baka

HVÍTA HÚSIÐ Auglýsingastofa
Brautarholti 8, 105 Reykjavík IS
Sími: 562 1177, Fax: 562 1165, hvitahusid@hvitahusid.is
Loewy group
Screenet
ABS fjölmiðlahús