Verkefnið er afrakstur af samstarfi auglýsingastofunnar og grænlenska fréttablaðsins AG sem hefur séð um að skapa tengsl við grænlenska verkkaupa. Í upphafi stóð aðeins til að Hvíta húsið hannaði nýtt merki stöðvarinnar en svo vel þótti takast til að stofan var fengin til að vinna að meiriháttar yfirhalningu á útliti stöðvarinnar. Nýtt merki KNR er mynd af kajak-ræðara sem á Grænlandi táknar sambandið á milli fortíðar og framtíðar.