Iceland: The Real Unreal

Það er ekki nóg að skilja vörumerkið. Þú þarft að skilja heiminn sem það býr í, fólkið sem það talar við og spennuna þar á milli. Þar verða góðar hugmyndir að hugmyndum sem skipta máli.

The Real Unreal herferðin hefur hlotið fjölda erlendra verðlauna og tilnefninga. Þar má nefna hinu virtu Clio og Global SABRE verðlaun og tilnefningu til
Cannes Lion.

Þetta byrjaði allt snemma árs 2025 þegar álit rýnihópa á markaðsefni Icelandair á erlendum mörkuðum var til skoðunar. Viðbrögðin þóttu almennt jákvæð, fyrir utan eitt: Fólk gagnrýndi flugfélagið fyrir að nota gervigreindarmyndir af Íslandi.

Sem var skrítið, enda er það ekki gert.

Þarna fengum við innsýn inn í nýjan veruleika – þar sem er sífellt erfiðara að greina á milli þess sem er raunverulegt og þess sem er falsað, þar sem Ísland var orðið fórnarlamb eigin fegurðar.

Við snerum vandamálinu upp í styrkleika. Skilaboðin voru: Hér er allt ekta, það sem þú sérð og það sem þú upplifir.