Já. Þú kemst þangað.

Hugmynd herferðarinnar byggir á einu orði: Já. Við vildum fá fólk til að hugsa lengra og tengja Icelandair við framandi áfangastaði. Kvikmyndaða efnið var hannað í kringum spurningu og svar, sama um hvaða áfangastað var spurt var svarið alltaf: Já. 

Við grafíska útfærslu fékk Já-ið sitt eigið sjálfstæða útlit. Já-ið faðmaði fjarlæga áfangastaði og upplifanir og tengdi þannig útlit og skilaboð saman með einföldum en um leið ríkulegum hætti. Notast var við skalanlegt leturkerfi og ljósmyndir maskaðar inn í leturformið.

Nýtt og sjálfstætt útlit vakti athygli, gaf vörunni aðgreiningu frá öðru auglýsingaefni Icelandair og víkkaði sjónrænan heim félagsins.