Reynsluboltar úr heimi auglýsinga, hönnunar og samfélags settust niður á Gilligogg, dreyptu á kokteilum og ræddu um samspil auglýsingahönnunar og samfélagsbreytinga út frá nokkrum tímamótum. Hvað gerðist eiginlega, og hvað gerist næst? Þetta var allt í trúnaði auðvitað, en þér er samt boðið að leggja við hlustir.

Viltu frekar horfa á Spotify? Smelltu þá hér!

Gervigreind

Hvað þýðir yfirstandandi tæknibylting fyrir auglýsingabransann? Bragi Valdimar Skúlason, Hugkvæmdastjóri Brandenburg og Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins spá í þau spil og fleiri.

COVID

Hvernig getur hönnun komið til hjálpar þegar áföll skekja samfélagið? Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Kári Sævarsson, hugmyndastjóri og stofnandi Tvist rifjuðu upp fordæmalausa tíma.

Kvennafrí

Hvernig tala auglýsingar við konur? Hvernig tala auglýsingar um konur? Elizabeth A. Cohan, grafískur hönnuður og fyrrum sköpunarstjóri og Rán Ísold Eysteinsdóttir, vöruhönnuður hjá Noona velta fyrir sér kynjamyndum.

Hrunið

Hvað missti auglýsingabransinn í hruninu, og hvað lærði hann? Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs hjá Samtökum atvinnulífsins og Sverrir Björnsson, grafískur hönnuður og fyrrum sköpunarstjóri meta stöðuna.

Eyjafjallajökull

Er fátt svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott? Gísli S. Brynjólfsson,forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair og Kristín Gunnarsdóttir, grafískur hönnuður og hlaðvarpsstjórnandi skoða ímynd Íslands gegnum gosmökkinn.